14.05.2014 21:00

Tveir Stafnesbátar komu við sögu í dag og litlu munaði að annar lenti síðan í vanda

Snemma í dag bilaði stýri Nonna GK 129, þar sem hann var að veiðum úti af Hvalsnesi, en báturinn er með heimahöfn á Stafnesi. Var kallað í annan bát sem er með sömu heimahöfn, en sá var á landleið, enda kominn strekkingur á miðunum, var þeim báti Kópi GK 158, snúið við og Nonni sóttur og dreginn síðan til Sandgerðis. Ekki bara það að hann væri dreginn að löndunarbryggjunni, heldur eftir að búið var að landa úr báðum bátunum dró Kópur, Nonna í smábátahöfnina og þá munaði ekki miklu að Kópur lenti uppi í grjótinu, að sögn skipstjóra Kópsins. Náði ég myndum af bátunum þegar löndun var lokið um kl. 15, í dag og  voru á leið í smábátahöfnina og á síðustu myndinni sést einmitt þegar Kópur var stutt frá því að lenta uppi í grjótinu.




















                    6708. Kópur GK 158, með 6639. Nonna GK 129, í Sandgerði, í dag


Hér sést hvað litlu munaði að Kópur lenti uppi í grjótinu er hann var að koma með Nonna að bryggju í smábátahöfninni, í Sandgerði
                                                © myndir Emil Páll, í dag,  14. maí 2014