06.05.2014 17:23
Kaup á Bergi-Hugin ógild
AF RUV.IS:

Vestmannaeyjar. Mynd: Aljo Hartgers.
Héraðsdómur Reykjavíkur ógilti í dag kaup Síldarvinnslunnar hf. á öllu hlutafé í útgerðarfélaginu Bergur- Huginn ehf. Tilkynnt var um kaupin 30. ágúst 2012. Bergur-Huginn er skrásett í Vestmannaeyjum og rekur þar fiskiskipaútverð og fiskvinnslu.
Útgerð í Vestmannaeyjum en eignarhaldsfélag í Reykjavík
Bergur Huginn á og gerir út tvo nýlega togara frá Vestmannaeyjum. Vestmannaeyjabær stefndi samningsaðilum - Síldarvinnslunni og Q44, eignarhaldsfélagi í eigu Magnúsar Kristinssonar, sem hlutirnir í Bergi-Hugni voru í. Stefnan byggði á að sveitarfélagið ætti forkaupsrétt á fiskiskipum Bergs-Hugins, samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða. Síldarvinnslan og Q44 héldu því fram að bærinn ætti ekki aðild að málinu. Vestmannaeyjabær hefði engra lögvarða hagsmuni vegna þess að félagið sem selt var, Q44, væri ekki með heimilisfesti í Vestmannaeyjum, heldur skráð í Reykjavík.
Héraðsdómari hafnaði þessu. Ekkert hafi komið fram í málinu sem eyði vafa um að eignarhlutir í Bergi-Hugin hafi verið fluttir til Q44 gagngert til að gera forkaupsréttarákvæðið óvirkt. Síldarvinnslan og Q44 vildu ekki leggja kaupsamninginn fram, þrátt fyrir ítrekkaðar áskoranir. Síldarvinnslan og Q44 þurfa að greiða Vestmannaeyjabæ þrját milljónir í málskostnað.
Gunnþór Ingvason forstjóri Síldarvinnslunnar segir ekki að vænta viðbragða frá fyrirtækinu strax. Aðspurður hvers vegna fyrirtækið hafi ekki viljað leggja fram kaupsamninginn, eins og farið var fram á fyrir dómi, sagðist hann ekki getað svarað neinum slíkum spuringum því hann ætti eftir að setja sig inn í dóminn.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum segir að bærinn fagni þessari niðurstöðu og líti á hana sem áfangasigur í baráttu íbúa sjávarútvegssveitarfélaga fyrir auknu atvinnuöryggi.
