15.04.2014 19:50

Vélin sett niður í nýsmíði 7730, í Njarðvík

Sl. laugardag sendi Eiríkur Bragason mér þessa myndasyrpu af báti sem Bragi Sigurðsson og synir hans eru að fullgera inni í Njarðvík. Upphaflega var bátur þessi smíðaður hjá Bláfelli á Ásbrú, en þáverandi kaupandi sem býr í Hafnarfirði, ætlaði að klára bátinn, en ekkert varð úr því og því keyptu þeir feðgar bátinn og fengu Sólplast í Sandgerði til að klára plastverkið, en sjálfir ætla þeir að gullgera bátinn og hér sjáum við frá því er þeir feðgar settu niður vélina í nýsmíðina sem hefur fengið skipaskrárnnúmeri 7730, en vélin er að gerðinni Cummins 500 hö

Sökum tæknivandamáls gat ég ekki rétt við þær myndir sem teknar voru upp og niður og því birtist ekki öll syrpan. Nú er þetta komið í lag og því birti ég syrpuna og færi um leið sendi ég Eiríki Bragasyni þakkir fyrir myndirnar. Á sumum myndanna sést faðirinn Bragi Sigurðsson.














           Vélin sett niður í nýsmíði 7730, í Njarðvík. Á fimm myndanna sést faðirinn í hópnum, Bragi Sigurðsson © myndir Eiríkur Bragason, 12. apríl 2014