15.04.2014 14:15

Kokkurinn á Þerney 60 ára - myndir og frásögn

Eftirfarandi skrifuðu þeir á Þerney, í gær:

Stórafmæli um borð í Gulleyjunni, Siggi kokkur fagnar 60 ára afmæli í dag og að sjálfsögðu fögnum við allir með honum, miðað við göslaganginn og uppátæki Sigurðar í gegnum tíðina þá er ekki sjálfgefið að fagna þessum háa aldri sem Siggi hefur náð. Björn Hjálmarsson ætlar Sigurði til heiðurs að taka að sér eldamennskuna í kvöld og ætlar að bera á borð skötusel í hátíðarbúning með nýbökuðu langbrauði, og verða birtar myndir af gestakokkinum við störf sín á morgun,þess má geta að Björn er vanur að elda ofan í stóra fjölskyldu eins frystitogaraáhöfn er.
Áhöfn Þerneyjar RE óskar Sigurði hjartanlega til hamingju með stórafmælið.


Hér koma svo myndir af eldamennskunni, sem birtust í dag:


           Dass, af þessu í sósuna, rjómi og smjör var ekki sparað í sóluna enda gæðin eftir því


                              Þarna er Gestakokkurinn að léttsteikja skötuselinn


           Gestakokkurinn vakir yfir hitaborðinu, glæsilegur kvöldverður hjá honum og allir voru stórhrifnir

                   © myndir og texti, skipverjar á 2203. Þerney RE 1 í gær, 14. apríl 2014