13.04.2014 17:55
Forfært hjá Sólplasti, í dag
Eins og ég hef áður sagt frá er mikið að gera hjá Sólplasti og er nú unnið bæði virka daga sem helga, m.a. vegna þess að útgerðarmenn nota hryggningastoppið til að lagfæra báta sína. Því var farið í það í dag að forfæra báta milli húsa og eins af útisvæði og inn í hús sem og úr húsi og út. Hér birti ég myndir af fimm slíkum færslum, en eftir þetta eru fjórir bátar innan húss, auk báta sem ýmist eru í bið, eða komast ekki inn og eru því á útisvæði.

7641. Vending sem var skemmtibátur og nú er verið að breyta í fiskibát, var færður til í dag


2106. Addi afi GK 97, sem er í ýmsum lagfæringum og endurbótum meðan á stoppinu stendur var færður af útisvæði og inn.

Auk 7641. var þessi litli sportbátur tekinn út, en hann mun ekki fá innipláss á næstunni

Þessi sportbátur, er með skemmdan botn og var færður á milli húsa © myndir Emil Páll, í dag, 13. apríl 2014
