11.04.2014 11:15

Offylti bátinn og fékk aðstoð björgunarsveita til að komast að landi

Nú fyrir nokkrum dögum var kallað eftir aðstoð björgunarsveitar á Austfjörðum, þar sem bátur var að síga mikið að aftan. Eftir að komið var í land var haft eftir skipstjóra bátsins, að ástæðan fyrir að báturinn seig var að hann hefði sett of mikinn afla í bátinn. Hér birtast þrjár myndir sem birtust í mbl.is af ferð viðkomandi báts og björgunarbáta til Eskifjarðar, en myndirnar voru birtar upphaflega á facebooksíðunni Eskifjörður.


                                           Björgunarbátarnir fylgja bátnum til lands


              1698. Einir SU 7, all síginn að aftan á landleið í fylgd björgunarsveitar



           Bátarnir komnir að bryggju á Eskifirði © myndir  Eskifjörður, com. facebook. 9.  apríl 2014

 

AF FACEBOOK:
Þorgrímur Ómar Tavsen Það ætla ég að vona að haldið hafi verið sjópróf,alla vega er lögreglan þarna.Allt of margir skipsstjórnarmenn við stjórnvöld sem hafa þar ekkert að gera
 
Sigurbrandur Jakobsson Ég man þá tíð að það var sérstakt átak í gangi vegna ofhleðslu því það fóru nokkuð margir niður á gullæðisárunum kringum aldamótin sem pottþétt var rakið til ofhleðslu. Sammála síðasta ræðumanni að því miður eru of margir við stjórnvöl til sjós sem varla eru menn til þess