10.03.2014 08:38

Ísbjörn ÍS leigður til Grænlands

bb.is 7. mars sl:

Ísbjörn ÍS var keyptur haustið 2011.
                Ísbjörn ÍS var keyptur haustið 2011© mynd bb.is
 

Frystitogari útgerðarfélagsins Sædísar ehf., á Ísafirði, Ísbjörn ÍS, hefur verið leigður til Grænlands. Jón Guðbjartsson, einn eigenda Sædísar ehf., segir engan rekstrargrundvöll fyrir skipið hérlendis. Sædís ehf., er í eigu Birnis ehf., og Kampa ehf. „Veiðin hefur dregist saman á Íslandsmiðum og aflaheimildir sem við vonuðumst til að fá á fjarlægum miðum gengu ekki eftir,“ segir Jón. Ísbjörninn verður ekki að veiðum við Grænlandi sögn Jóns, heldur verður skipið notað sem fljótandi frystihús þar sem fá frystihús eru á svæðinu.

„Hann verður á norðvestur Grænlandi og mun aðallega frysta grálúðu sem sjómenn í þorpunum veiða. Hann er í slipp núna. Það er verið að taka úr honum aftasta hluta rækjuverksmiðjunnar og í staðinn verður settur upp búnaður til að flokka og vinna grálúðu.“ Leigutími skipsins er 18 mánuðir og segir Jón óvíst hvað gerist eftir þann tíma. „Við munum setjast niður með þeim og mögulega kaupa þeir skipið. Við vorum búnir að auglýsa hann til sölu en erum búnir að taka hann af söluskrá meðan á leigunni stendur.“

Fyrirtækið sem leigir Ísbjörn er í grænlenskri og danskri eigu og manna þeir skipið sjálfir. Einn maður frá útgerð Ísbjarnar verður um borð en hann verður á launaskrá leigutakans. Jón gerir út tvö önnur skip, Valbjörn og Gunnbjörn, sem hafa ekki verið á sjó í vetur. „Ef veður og veiði skána, fara hin skipin á sjó. En til framtíðar þá skiptir nýtt frumvarp sjávarútvegsráðherra öllu máli um framtíðarmöguleika rækjuútgerðar. Fari það svo að kvótanum verði skipt eins og ráðherra leggur til þá er útlitið dökkt,“ segir Jón.