01.03.2014 19:23

Örtröð í Sandgerði, í kvöld þrátt fyrir 5 löndunarkrana biðu oftast 5-6 bátar

Í dag hafa smærri bátarnir verið að veiðum að mestu í nánast einum hnapp norð-vestur af Sandgerði og komu þeir allflestir til Sandgerðis til löndunar. Þarna mátti sjá báta frá Grindavík, Hafnarfirði, Akranesi, Borgarnesi og víðar auk þeirra sem alltaf landa. Enda fóru leikar þannig að þrátt fyrir að 5 löndunarkranar væru í gangi, biðu samt 5-6 bátar eftir að komast undir kranann. Má segja að hvert sinn sem krani losnaði komu einn til tveir bátar inn í höfnina.

Hér sjáum við fjóra báta og eru þrír þeirra að bíða, en verið að landa úr þeim fjórða. Á morgun mun ég síðan birta myndir sem ég tók í kvöld í Sandgerði.


           1844. Víxill II SH 158, 2664. Guðmundur á Hópi GK 203 og 1969. Hafsvala HF 107, bíða eftir löndunarplássi. Verið er að landa úr 2426. Keili II AK 4 © mynd Emil Páll, 1. mars 2014