23.02.2014 21:01
Helguvík í dag: Vilhelm Þorsteinsson EA 11 að landa loðnu og Mimer að taka þyrlur og önnur hergögn
Hér kemur smá myndasyrpa sem sýnir Vilhelm Þorsteinsson EA 11 og flutningaskipið Mimer í Helguvík í dag. Sá fyrrnefndi var að landa loðnu, en sá síðarnefndi að taka herþyrlur og fleiri hergögn, sem notast var við heræfinguna sem loksins er lokið á Keflavíkurflugvelli. Já loksins segi ég því þó maður hafi vanist við það áður fyrr að vera með stanslausan þotugný frá herþotunum var sú hávaðamegun úr sögunni, þegar þetta ævintýri hófst fyrir nokkru og þá kom Mimer með þyrlur og hergögnin til Helguvíkur og beið þar síðan til að taka þau til baka.
En talandi um hávarðamengunina, þá vonaðist maður svona innst inni til að þoturnar færu þó ekki væri nema einu sinni og notuðu Reykjavíkurflugvöll með öllum sínum hávaða og tækju svo á loft yfir miðbæinn og þar með Alþingishúsið og tækju svo sveig fyrir austurborgina í Reykjavík. Bara svo þetta lið sem býr í höfuðborginni og sérstaklega þeir sem eiga heima í 101, eða starfa þar fengju aðeins smá sýnishorn af því sem við höfum fengið að hafa þennan tíma. Því miður var þetta bara von, sem auðvitað varð ekki raunveruleg, því miður.
Hér sjáum við skipin tvö í Helguvík í hádeginu í dag, tvær þyrlur og eins eitthvað annað af hergögnum á bryggjunni við Vilhelm Þorsteinsson, því þau voru þar sem annarsstaðar í víkinni í dag og í gær.
![]() |
||||||||
|
|





