22.02.2014 21:00

Bryndís SH 128, fyrir og eftir breytingar hjá Sólplasti

Í gær er ég birti nýjar myndir af Bryndísi SH 128, í húsakynnum Sólplasts í Sandgerði, lofaði ég betri myndum í dag og hér koma þær. Jafnframt koma þrjár eldri myndir af bátnum, þ.e. af honum, þegar hann kom til Sólplasts á síðasta ári og eftir hverri eldri mynd kemur ný mynd sem ég tók í dag frá sama sjónarhorni og sjást þá breytingarnar vel. Aðalbreytingarar voru að báturinn var lengdur að aftan og eins var stýrishúsið stækkað. Þá var báturinn merktur með öðrum lit og sett á hann annað til skreytingar. Það eina sem ekki er nógu gott við þessar myndir að nokkuð var um endurspeglun úr umhverfinu og því sést í raun ekki hversu vel báturinn er sprautaður.

Ekki er ætlunin að báturinn fari á veiðar fyrr en í vor og mun eigandinn því nýta tímann til að klára, það sem ekki kom í hlut Sólplasts að klára. Eitt þeirra atriða er að mála á hann botnmálninguna.

Sem fyrr segir kemur fyrst mynd frá því í fyrra og síðan strax á eftir mynd af sama sjónarhornin tekin í dag. Gerist þetta með fyrstu myndirnar, en síðan koma eingöngu myndir frá því í dag.

 


                                  2576. Bryndís SH 128, á árinu 2013


                                      Sama sjónarhorn, 22. febrúar 2014


                       Svona leit stýrishúsið út á árinu 2013


                Í dag er stýrishúsið svona, eftir stækkunina og skemmtilegri merking og skreyting komin á


              Þarna sést vel hvernig hann leit út fyrir breytingar og þá sérstaklega aftast

             Í dag er þetta mikið meiri bátur, með stærra stýrishúsi og ekki síður eftir lenginguna að aftan. Væri botnmálingin komin á væri hann enn glæsilegri.

              Þarna speglast umhverfið nokkuð í bátinn og því sést ekki alveg hversu vel hann er sprautaður


 


 


          2576. Bryndís SH 128, fyrir og eftir breytingar hjá Sólplasti, í Sandgerði                                  

                              © myndir Emil Páll, 2013 og 22. feb. 2014