17.02.2014 08:56

Ísfélag Vestmannaeyja, selur tvö skip úr landi

mbl.is:

 

Ísfélag Vestmannaeyja hefur skrifað undir viljayfirlýsingu um sölu á fjölveiðiskipinu Þorsteini ÞH og uppsjávarfrystiskipinu Guðmundi VE úr landi.

Í fréttatilkynningu frá Ísfélaginu síðan í ágúst í fyrra kemur fram að fyrirtækið hafi gert samning um kaup á skipi sem er í smíðum í Celiktrans skipasmíðastöðinni í Istanbúl í Tyrklandi. Skipið verður afhent tilbúið til veiða í byrjun næsta árs.

„Gera má ráð fyrir að hið nýja skip leysi tvö af eldri skipum félagsins af hólmi, með tilheyrandi lækkun olíu- og launakostnaðar,“ segir í tilkynningu frá félaginu í ágúst í fyrra.

„Fyrirhugað er að félag í eigu Royal Greenland A/S, Ísfélags Vestmannaeyja hf. og annarra aðila eignist og geri út skipin. Royal Greenland er elsta og þekktasta sjávarútvegsfyrirtæki Grænlands. Skipin verða gerð út á Grænlandsmið eftir að þau hafa verið afhent nýjum eiganda síðar á árinu,“ segir í tilkynningu nú frá Ísfélagi Vestmannaeyja