27.01.2014 06:00
Íslenska innrásin í Örnes, í Noregi

Öyfisk N-34-ME ex 1860. Þórir Jóhannsson GK 116 © mynd Jón Páll Jakobsson, 25 jan. 2014
Jón Páll er eins og margir vita með aðra löppina í Noregi og hina á Bíldudal og stýrir bát sínum Andra BA 101 til rækjuveiða þegar þær eru heimilaðar í Arnarfirði. Hann er einnig með blogg síðu og í fyrradag skrifaði hann þetta:
Noregur Noregur
Eða á maður að segja Ísland því við erum orðnir svo margir hérna íslendingarnir að, innbyggjarnir eru bara farnir að tala um íslensku innrásina. En nú eru sjö stykki hér um borð í Polarhav. Annars er lítið að frétta nema nú starfa ég sem hálfgerður útgerðarstjóri að koma flotanum ósigrandi af stað.
Veðrið hefur leikið við okkar alltaf logn en smá galli við höfum nokkuð mikið frost.
Planið er að koma Öyfisk í slipp, Holmvaag um í Röst og Polarfangst og Polarhav í Lofoten síðan mun Polar Atlantic að fara í offshore í feb má segja að það sé of mikið að gera.
---
Staðan er því þannig í dag að Jón Páll, er hálfgerður útgerðarstjóri eins og hann kallar það og meðal þeirra sjö íslendinga sem eru á Polarhav, er Svafar Gestsson vélstjóri.
