10.01.2014 16:16
20 ár frá einni stærstu björgunaraðgerð á Austurlandi
Af vefsíðu Slysavarnarfélgsins Landsbjargar:
Í dag eru liðin 20 ár frá einni stærstu björgunaraðgerð á Austurlandi síðustu áratugina þegar Goðinn fórst í Vaðlavík. Goðinn, sem var björgunarskip tryggingarfélaga, var sendur í Vaðlavík þegar tilraunir til að draga Bergvík VE á flot höfðu gengið illa. Bergvíkin strandaði í víkinni þann 18. desember. Goðinn náði að snúa strandaða skipinu og átti að halda við það fram til morguns í afar slæmu veðri.
Björgunarsveitir voru nýfarnar úr fjörunni þegar Goðinn fékk á sig mikið brot. Við það lést stýrimaður skipsins. Allir gluggar í brúnni fóru við brotið og urðu skipverjar að hafast við í klefa fyrir aftan brúnna þar til um morguninn þegar björgunarsveitir koma aftur í fjöruna. Reynt var að skjóta línu út í skipið án árangurs. Um sama leyti féll að og þurftu skipverjar að færa sig upp á brúarþak þar sem þeir bundu sig við skorsteininn þar sem brotsjór gekk yfir þá. Tvær öflugar þyrlur frá Varnarliði Bandaríkjahers voru sendar á staðinn þrátt fyrir aftakaveður. Kom sú fyrri í Vaðlavík klukkan 15:00, rétt fyrir myrkur. Tókst að hífa skipbrotsmennina um borð, tvo í einu, þrátt fyrir mikla ókyrrð.
Í tilefni þessa frækilega björgunarafreks verður
- haldin stutt athöfn við minnisvarða um drukknaða sjómenn á Eskifirði, sunnudaginn 12. janúar, kl 15.
