17.12.2013 17:27

Venus seldur í dag til Grænlands

Heimasíða HB.Granda, í dag:


                           1308. Venus HF 519 © mynd af vefsíðu HB Granda

HB Grandi hf. seldi í dag frystitogarann Venus HF 519. Kaupandinn er grænlenska félagið Northern Seafood ApS. Söluverðið er 320 milljónir króna og mun greiðast á næstu árum. Markaðsdeild HB Granda hf. mun annast sölu afurða a.m.k. þar til kaupverðið er greitt að fullu.

Venus var smíðaður á Spáni árið 1973 fyrir Bæjarútgerð Hafnarfjarðar. Venus var í fyrstu gerður út sem ísfisktogari og bar heitið Júní en nýir eigendur hyggjast nefna skipið því nafni aftur. Forsvarsmaður hinna nýju eiganda er Benedikt Sverrisson, sími 773 4250.