23.11.2013 21:15
Hilmir GK 498, smíðaður í Keflavík 1942, rifinn á Hólmavík 2008 - myndir frá ýmsu og saga bátsins
Eins og sést undir myndunum var þetta fyrsti báturinn sem smíðaður var hjá Dráttarbraut Keflavíkur, var það árið 1942. Ekki var hann gerður út í mörg ár frá Keflavík, því í maí 1946 fékk hann númerið ST 1, en hélt nafninu. Sú skráning var á bátnum meðan hann var til og hér fyrir neðan kemur einnig fram deilu um varðveislu á Hólmavík.
Þær myndir sem nú birtast eru upphaflega úr safni Erlends Sigurðssonar sem var skipstjóri bátsins er hann var gerður út frá Keflavík og komust þær í mína umsjón í gegn um son hans. Myndir þessar sýna bátinn og ýmislegt þar tengt.













565. Hilmir GK 498 © myndir frá Eiríki Erlendssyni,
trúlega teknar af föður hans Erlendi Sigurðssyni sem var skipstjóri bátsins
Smíðanúmer 1 hjá Dráttarbraut Keflavíkur hf., Keflavík 1942.
Úreldur 20. maí 1995. Settur á land til varðveislu sem safngripur hjá Byggðasafni Stranda- og Húnavatnssýsla og til þess var stofnað félagið Mummi ehf. Í ágúst 2008 krafðist Sveitarstjórn Strandabyggða að báturinn yrði fjarlægður af Hólmanum á Hólmavík, þar sem varðveisla hans hafði ekki tekist betur en svo að auðveldara væri að byggja nýjan bát en endurbyggja þann gamla, Var hann því rifinn 18. des. 2008.
Nöfn: Hilmir GK 498 og Hilmir ST 1
