23.11.2013 09:26
Góð veiði í Kolgrafarfirði
mbl.is:
Bátar eru komnir til síldveiða í Kolgrafarfirði. „Það er ágætis veiði þarna,“ segir Hafsteinn Garðarsson, hafnarstjóri í Grundarfirði, í samtali við mbl.is. Á níunda tímanum voru fjórir bátar komnir til veiða í firðinum og er von á fleirum í dag.
Hafsteinn segir að fjórir bátar frá Grundarfirði séu nú staddir í Kolgrafarfirði, en þeir lögðu af stað um fimmleytið í morgun. Aðspurður segir Hafsteinn að aðstæður til veiða séu góðar og að veiðarnar hafi gengið vel. Um er að ræða smábáta sem geta tekið um það bil fjögur til fimm tonn um borð.
Í gær ákvað umhverfisráðherra að gefa síldveiðar frjálsar innan brúar í Kolgrafafirði á Snæfellsnesi. Ráðherra vonaðist til þess að veiðarnar gætu hvoru tveggja bjargað verðmætum og haft mögulegan fælingarmátt þannig að síldin gengi fyrr út úr firðinum en ella.
Aðeins er hægt að fara undir brúna í Kolgrafafirði á fjöru og því hafa menn orðið að leggja af stað snemma, en menn hafa um 12 tíma til að athafna sig við veiðarnar.
Frá Kolgrafafirði. mbl.is/Rúnar