18.11.2013 09:38
Hlynntur því að kvótasetja makríl
ruv.is:

Sigurður Ingi Jóhannsson, ráðherra sjávarútvegsmála telur tækifæri til að auka arðsemi af makrílveiðum með því að kvótasetja tegundina. Nú er markrílkvóta úthlutað á grundvelli veiðireynslu til eins árs í senn samkvæmt lögum.
Makrílveiðar skila yfir 20 milljörðum króna í ríkissjóð á ári. Sigurður Ingi segir að það sé í sjálfu sér fullkomið tækifæri til þess að setja makrílstofninn í sama pott og aðra stofna, og þannig nýta möguleika á að hámarka arðsemi af þeirri nýtingu sem mest, og þá ekki síst í ljósi þjóðhagslegs ávinnings þess.
Í dag funda samninganefndir strandríkjanna um makrílveiðar á Írlandi.
AF Facebook:
Emil Páll Jónsson Hræddur er ég um að margir af þeim smábátakörlum sem hafa verið að fjárfesta undanfarin ár og sérstaklega í sumar, séu ekki sáttir við þetta.
Sigurbrandur Jakobsson Virkilega sammála því enda ekki gáfulegt að friða ránfisk sem fer vaxandi þrátt fyrir veiðar hvað sem ESB og fleiri segja
