16.11.2013 11:00

Þorleifur Rögnvaldsson ÓF 36 / Orri ÍS 180 - þetta eru fyrsta og síðan núverandi nafn á frægum báti


Svavar Guðni Gunnarsson, sendi mér myndir af bátnum eins og hann leit út í fyrstu. Þarna er hann, Þorleifur Rögnvaldsson ÓF 36 á síldveiðum, hér á árum áður þegar hin sönnu síldarári stóðu yfir, en á þeim tíma var faðir hans, Gunnar Svavarsson á bátnum.
Hér fyrir neðan birti ég þessar tvær myndir frá Svavari og eina mynd af bátnum eins og hann leit út í gær en þá mynd tók ég af honum. Þar að auki birti ég sögu bátsins en um frægan bát er að ræða.
          - Sendi ég Svavari Guðna, kærar þakki fyrir þessar myndir og aðrar sem koma í næstu færslu -




            923. Þorleifur Rögnvaldsson ÓF 36, á síldarárunum í denn © myndir frá Svavari Guðna Gunnarssyni


              923. Orri ÍS 180, í Sandgerði í gær © mynd Emil Páll, 15. nóv. 2013 - ótrúleg en samt satt, þetta er sami báturinn

Smíðaður hjá Fredrikssund Skipsværf, Frederikssund, Danmörku 1957, eftir teikningu Egils Þorfinnssonar.

Meðan báturinn bar Ásmundarnafnið var hann tekinn  á leigu til smyglferðar til Belgíu, þar sem hann var fylltur af áfengi aðallega Seniver og var búið að skipa því í land hérlendis, er upp komst um málið.
Samkvæmt lögum er það flutningstæki sem flytur ólöglegan farm til landsins að stærstum hluta gert upptækt til Ríkissjóðs. Þó eigandinn í þessu tilfelli væri að öllu leiti saklaus varð Alþingi að gefa undanþágu frá þessu og voru sérstök lög þess efnis samþykkt frá Alþingi.
Eftir þetta var fékk báturinn gælunafni Seniver, sumir sögðu Seniver-báturinn, aðrir Seniverdallurinn og annað í þá veru.

Endurbyggður hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur 1976 - 1979 að verkið stöðvaðist. Í janúar 1982 var ákveðið að farga bátnum þar sem Fiskveiðasjóður vildi ekki fjármagna endurbæturnar á bátnum. Aldrei varð þó gert í málinu og hófust endurbætur aftur í júní 1984 og lauk þeim 17. febrúar 1985. Var hann þá m.a. yfirbyggður og breytt í frambyggt skip.

Samþykkt var heimild 3. okt. 1994 til að úrelda bátinn, en af því varð þó ekki.

Báturinn lá við bryggju eftir að gírinn hrundi í honum. Fyrst í Sandgerði en eftir eigandaskipti var hann dreginn til Njarðvíkur. Átti eftir að skipt hafði verið um gír að hefja útgerð á hann að nýju, en ekkert varð af því og því lá hann í Njarðvikurhöfn þar til að hann var tekinn upp í Skipasmíðastöð Njarðvikur og út kom Orri ÍS 180, sem fór síðan eftir nokkra mánuði á rækjuveiðar fyrir norðurlandi,  þar sem hann hefur verið þar til nú að hann stundar veiðar á Eldeyjarrækjunni.

Nöfn: Þorleifur Rögnvaldsson ÓF 36, Ásmundur GK 30, Flosi ÍS 15, Sólrún GK 61, Símon Gíslason KE 155, Sigurður Þorkelsson ÍS 200, Skálaberg ÞH 244, Hlíðar Pétur NK 15, Stakkanes ÍS 72, Gísli Júl ÍS 262, aftur Hlífar Pétur NK 15, Sunna Björg HF 87, Kolbrún ÍS 74, Freyja GK 364, Röstin GK 120 og núverandi nafn: Orri ÍS 180