02.11.2013 07:05

Þór og Fernanda nú kl. 7 í morgun

Varðskipið Þór dólar nú á tveggja mílna hraða í Faxaflóa, þar sem komið er á mikið dýpi og stefnt er að vera fara út fyrir hryggningasvæðin,

 

  Eftirfarandi eru úr mbl.is. kl. 7.37 í morgun

Varðskipið Þór hefur dregið flutningaskipið Fernöndu vestur á Jökulbugt og er enn á vesturleið, samkvæmt upplýsingum frá stjórnstöð Landhelgisgæslunnar.

Nokkrir slökkviliðsmenn frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins eru um borð í Þór ásamt áhöfn en staðan verður endurmetin eftir að það birtir.

Skipin eru fjarri hrygningarstofnum og veiðisvæðum samkvæmt upplýsingum Hafrannsóknarstofnunar. Þá er allnokkuð dýpi á þessum slóðum.

Við skoðun áhafnar Þórs og slökkviliðsmanna SHS á ástandi Fernanda í gærkvöld mátti sjá að mikill hiti er í skrokk skipsins og því verður skipinu haldið á rólegri ferð í þeirri von að síður skipsins kólni og það haldist á floti.