21.08.2013 13:06

Meira um björgun Markúsar ÍS 777

Í gær birti ég mynd af bátnum sem tekin var stuttu eftir að Köfunarþjónusta Sigurðar náði honum á flot, en hann sökk sem kunnugt er í Flateyjarhöfn. Áður en Köfunarþjónusta Sigurðar kom að verkinu hafði annar aðili gert tilraun að lyfta honum en það tókst ekki og komu þeir þá að verkinu. Fyrir helgi þéttu þeir bátinn og nú er þeir komu eftir helgina voru þeir með það öflugar dælur, að báturinn var alveg kominn á flot um hálfri klukkustund eftir að þeir hófu verkið aftur.

Þeir sem komu að verkinu sem stafsmenn Köfunarþjónustu Sigurðar voru: Sigurður Örn Stefánsson, Bragi Snær Ragnarsson og Þórir Egilsson.


 Nú birti fleiri myndir af björgun bátsins, auk myndanna sem birtust í gær og í morgun. Myndir þessar eru teknar af Braga Snæ og Sigurði Stefánssyni.


                                     Þessi mynd er tekin áður en þeir höfðu rétt bátinn


                                  Báturinn komin á réttan kjöl


                           Hér er verið að dæla upp úr bátnum




                   616. Markús ÍS 777, kominn á flot í Flateyrarhöfn

           © myndir Bragi Snær og Sigurður Stefánsson, í ágúst 2013