21.08.2013 22:25

Happasæll, Gulley, Stakkavík, Dísa, Pálína Ágústsdóttir, Hringur og Fjóla

Enn eru það makrílbátanir sem hrífa mig og birt ég nú 10 mynda syrpu þar sem fram koma sjö bátar og voru allar myndirnar teknar í gær. Sjáum við þarna báta á miðunum, annan vera að kippa eins og það er kallað þegar bátar eru að færa sig til. Síðan eru bátar í Keflavíkurhöfn, ýmis að bíða eftir að geta landað, auk þess sem einhverjir eru  að landa og aðrir búnir. Einnig er einn bátur í Njarðvíkurhöfn, en sá var búinn að landa þegar myndirnar voru teknar.


          Fjórir bátar á veiðisvæði, framan við Garðinn. Þetta eru f.v. 1637. Stakkavík GK 85, 2110. Dísa GK 136, Pálína Ágústsdóttir GK 1 og 1396. Gulley KE 31


                        2640. Pálína Ágústsdóttir GK 1 að kippa, á Stakksfirði


                             13. Happasæll KE 94, í Keflavíkurhöfn, búinn að landa


                 2728. Hringur GK 18, nýbúinn að landa í Keflavíkurhöfn og fór svo áleiðis til útgerðarstaðar í Hafnarfirði








             1396. Gulley KE 31 að bíða eftir að komast að löndunarkrana í Keflavíkurhöfn


               1637. Stakkavík GK 85, búinn að landa í Keflavíkurhöfn. Rákin þvert á myndina er ekki skemmd, heldur var þetta veiðilína á Happasæl sem lá þarna yfir sjónarhorn mitt


                 1516. Fjóla GK 121, eftir löndun var bátnum lagt í Njarðvíkurhöfn

                                            © myndir Emil Páll, í gær, 20. ágúst 2013