09.08.2013 09:22

Makrílbátarnir streyma til Hólmavíkur

Eins og sést hefur á þeim myndum sem ég hef verið að birta frá Hólmavík á undanförnum dögum, eru margir af þeim bátum sem voru syðra á makrílveiðum komnir norður til Hólmavíkur og aðrir eru á leiðinni.

Enda veiðist makríllin þar og nánast hvergi annarsstaðar. Eins sé ég að togararnir eru að spá í svæðið líka, þó svo að þeir fari varla inn í Steingrímsfjörðinn.