01.08.2013 10:05
Kleifarberg RE: Allri áhöfninni sagt upp - skipið fer í úreldingu
Allri áhöfn Kleifarbergsins, skips Brims hf. hefur verið sagt upp störfum. Um fimmtíu manns eru í áhöfninni og er helmingur á sjó í einu. Stefnt er að því að ráða sem flesta aftur til starfa hjá öðrum skipum fyrirtækisins.
Kleifarbergið er 40 ára gamalt skip og fer nú í úreldingu. Guðmundur Kristjánsson, útgerðarmaður hjá Brimi, segir að skipið hafi reynst vel en það hefur verið í eigu Brims í um sex ár. Nú sé hins vegar tímabært að leggja því.
Sjómenn eru ráðnir á skip, ekki til útgerðarinnar, minnir Guðmundur á. Því þurfi að gera nýja ráðningarsamninga við
Í haust er stefnt að því að nýr frystitogari Brims, Skálaberg, hefji veiðar.
Heimild: mbl.is:
![]() |
1360. Kleifarberg, ÓF, nú RE © mynd af vef Brims hf. |

