08.06.2013 11:00

Mummi GK 120


            685. Mummi GK 120 © mynd í eigu Geirs Garðarssonar, ljósm. Þorsteinn Gíslason                

Smíðanúmer 5 hjá Dráttarbraut Keflavíkur hf., eftir teikningu Egils Þorfinnssonar. Hljóp af stokkum 1. apríl 1946. Fórst í róðri út af Barða, Vestfjörðum 10. okt. 1964 ásamt 4 mönnum.

Var upphaflega smíðaður fyrir Björn Ólafsson frá Mýrarhúsum, en hann seldi bátinn meðan hann var í smíðum.

Nöfn: Mummi GK 120 og Mummi ÍS 366.