23.04.2013 18:45

Vatnsnes KE 30


                     212. Vatnsnes KE 30, í Keflavíkurhöfn © mynd Emil Páll

Smíðanúmer 256 hjá Lindströl Skips & Batbyggeri, Risör, Noregi 1960. Lengdur hjá Stálsmiðjunni hf., Reykjavík 1986. Yfirbyggður og breytt í Noregi 199?. Úreltur samkv. samþ. 3. sept. 1994. Seldur úr landi til Grænlands 22, desember 1994.

Kom í slipp í Hafnarfirði i júlí 2002 og var þá gjörbreyttur í útliti frá því sem áður var, er hann var undir íslenskum fána.

Nöfn: Sæþór ÓF 5, Sæfari AK 171, Erlingur Arnar VE 124, Hringur GK 18, Vatnsnes KE 30, Axel Eyjólfs KE 70, Skagaröst KE 70, Ögmundur RE 94, H.B. Lyberth GR 7-240, Anna Kill GR  6-8 og  Mask Tender GR 6-8.