19.04.2013 10:26

Norðursigling fær nýja skonnortu

mbl.is:

 
 
                                Skonnortan Opal á siglingu.

Í dag verður tekið á móti nýrri skonnortu Norðursiglingar og áhöfn hennar með viðhöfn við Húsavíkurhöfn.

Skútunni var siglt frá Ebeltoft í Danmörku, um Skotland og Færeyjar og gekk siglingin vel undir seglum meirihluta leiðarinnar. Samkvæmt Heimi Harðarsyni, skipstjóra Opal og eins eigenda Norðursiglingar reynist Opal afar vel, bæði traust og lipur til siglinga, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Á Húsavík bíður Opal nýtt hlutverk sem leiðangurs- og hvalaskoðunarskip.

Opal er 32 metra löng, tvímastra skonnorta með 380 m2 seglaflöt, níu segl. Opal hefur káetur fyrir 12 farþega, í sex klefum, auk áhafnar. Um borð er 280 hestafla Scania vél og skipið er vel búið tækni- og öryggisbúnaði.

Skonnortan er byggð sem togari í Damgarten árið 1952, eikarplankar á eikarbönd.  Árið 1973 tóku nýir, danskir eigendur við skipinu og á næstu átta árum þar á eftir var Opal breytt í skonnortuna sem hún er í dag. Í janúar síðastliðnum festi Norðursigling kaup á skipinu.

Með þessari viðbót hyggst Norðursigling byggja enn frekar undir framboð á skútusiglingum auk þess að mæta aukinni eftirspurn eftir lengri ferðum og leiðöngrum