16.04.2013 10:45

Ingibjörg KE 114 og Þorsteinn Gíslason KE 31

            334. Ingibjörg KE 114 og 288. Þorsteinn Gíslason KE 31 í Keflavík © mynd Emil Páll, snemma á áttunda áratug síðustu aldar

 

334.

Smíðaður í Svíþjóð 1941, en innfluttur hingað til lands 1945. Eldur kom upp í bátnum er hann var á veiðum í ágúst 1977 og var hann dreginn í land, en var svo illa farinn að hann var dæmdur ónýtur.

Nöfn:  Björg SU 9, Ingibjörg KE 114 og Ingibjörg SH 142

288.

Smíðaður hjá Avera-Werft við Lubeck, Niendorf, Þýskalandi 1959, eftir teikningu Egils Þorfinnssonar. Báturinn hljóp af stokkum 17. desember 1959, en kom þó ekki í fyrsta sinn til Keflavíkur fyrr en í desember 1960. Báturinn hét eftir gömlum þekktum sjósóknara í Keflavík.

Upphaflega átti báturinn að heita Guðbjörg ÍS 14 og eigandi Hrönn hf. Ísafirði. En vegna einhverja vandræða við fjármögnun hjá Hrönn hf. fékk Guðfinnur sf. þennan bát og þeir á Ísafirði bát þann sem smíðaður var sem bátur Guðfinns.

Nöfn: Árni Geir KE 31, Þorsteinn Gíslason KE 31, Þorsteinn Gíslason GK 2, Arnar í Hákoti SK 37 og núverandi nafn er: Jökull SK 16.