05.04.2013 22:45

Fram KE 105 og Hlýri GK 305

               1271. Fram KE 105 og 1226. Hlýri GK 305, í Sandgerðishöfn © mynd Emil Páll

1271.

Smíðanúmer 407 hjá Bátalóni hf., Hafnarfirði 1972. Lagt í september 1989, úreldaður 6. apríl 1992 og brenndur á áramótabrennu ofan við Innri-Njarðvík 31. desember 1992.

Upphaflega smíðaður fyrir útgerðarmann í Ólafsvík, en sá hætti við og seldi bátinn rétt áður en hann var tilbúinn. Þau 20 ár sem báturinn var til var hann oft seldur meðal útgerðarmanna og því gerður út t.d. frá Keflavík, Sandgerði, Grenivík og Njarðvík.

Bar aðeins þetta eina nafn: Fram KE 105.

1226.

Smíðaður á Akureyri 1961, sem nótabátur, en dekkaður og endurgyggður í Kópavogi og skráður sem fiskiskip 1971. Talinn ónýtur eftir bruna um aldarmótin og fargað í framhaldi af því.

Nöfn: Kristófer KÓ 10, Hlýri GK 305 og Hlýri VE 172