03.04.2013 11:20

Merkileg mynd: Símon Gíslason KE 155


                Ef þessi mynd er skoðuð vel, sést að hún er nokkuð merkileg, því báturinn sem er fyrir neðan Ölver, hét 923. Símon Gíslason KE 155 og var breytt þarna í frambyggðan eikarbát, sem enn er í rekstri. Heitir í dag Orri ÍS 180.

Verð ég að viðurkenna að ég hef ekki séð margar myndir af bátnum, undir þessu nafni sem var það síðasta áður en bátnum var breytt yfir í frambyggðan bát.

Hér kemur saga bátsins í stuttu máli.

Smíðaður hjá Fredrikssund Skipsværf, Frederikssund, Danmörku 1957, eftir teikningu Egils Þorfinnssonar.

Meðan báturinn bar Ásmundarnafnið var hann tekinn  á leigu til smyglferðar til Belgíu, þar sem hann var fylltur af áfengi aðallega Seniver og var búið að skipa því í land hérlendis, er upp komst um málið.
Samkvæmt lögum er það flutningstæki sem flytur ólöglegan farm til landsins að stærstum hluta gert upptækt til Ríkissjóðs. Þó eigandinn í þessu tilfelli væri að öllu leiti saklaus varð Alþingi að gefa undanþágu frá þessu og voru sérstök lög þess efnis samþykkt frá Alþingi.
Eftir þetta var fékk báturinn gælunafni Seniver, sumir sögðu Seniver-báturinn, aðrir Seniverdallurinn og annað í þá veru.

Samþykkt var heimild 3. okt. 1994 til að úrelda bátinn, en af því varð þó ekki.

Báturinn lág í nokkur ár við bryggju eftir að gírinn hrundi í honum. Fyrst í Sandgerði en eftir eigandaskipti var hann dreginn til Njarðvíkur. Þó margir teldu að þar með væru dagar hans taldir, þá kom fram bjartsýnn aðili sem vildi gera hann út og auglýsti nú eftir áramót eftir áhöfn á bátinn. Ekkert varð þó úr útgerð á þeim tíma, né unnið við gírinn. En það átti eftir að breytast og var báturinn tekinn enn á ný upp í slipp hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur og nú koma hann úr blár að lit og eftir ýmsa erfiðleika fór hann á rækjuveiðar fyrir norðurlandi og er í dag gerður út frá Húsavík

                                                        -o-

Endurbyggður hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur 1976 - 1979 að verkið stöðvaðist. Í janúar 1982 var ákveðið að farga bátnum þar sem Fiskveiðasjóður vildi ekki fjármagna endurbæturnar á bátnum. Aldrei varð þó gert í málinu og hófust endurbætur aftur í júní 1984 og lauk þeim 17. febrúar 1985. Var hann þá m.a. yfirbyggður og breytt í frambyggt skip.

Nöfn: Þorleifur Rögnvaldsson ÓF 36, Ásmundur GK 30, Flosi ÍS 15, Sólrún GK 61, Símon Gíslason KE 155, Sigurður Þorkelsson ÍS 200, Skálaberg ÞH 244, Hlífar Pétur NK 15, Stakkanes ÍS 72, Gísli Júl ÍS 262, aftur Hlífar Pétur NK 15, Sunna Björg HF 87, Kolbrún ÍS 74, Freyja GK 364, Röstin GK 120 og núverandi nafn er Orri ÍS 180.