17.03.2013 22:45

Vísir EA 712 og Sæfugl KE 10


                  900. Vísir EA 712 og 838. Sæfugl KE 10, í Keflavíkurhöfn © mynd Emil Páll, á sjöunda áratug síðustu aldar

838. Smíðaður í Hafnarfirði 1962. Nöfn: Sæfugl GK 300, Sæfugl KE 10, Sæfugl II GK 30, Sæfugl BA 10 og Sæfugl ÞH 140. Talinn ónýtur og tekinn af skrá 3. des. 1982

900. Smíðaður á Siglufirði 1942. Endurbyggður 1950 og 1958. Dekkaður af Nóa Kristjánssyni, Akureyri 1950. Skráður sem fiskibátur 1952. Hálf ónýtur stóð báturinn uppi í Örfirisey í Reykjavík í fjölda ára og var  að lokum afskráður 1996. Nöfn:  Valur EA 712, Níels Jónsson EA 712, Vísir EA 712, Þórarinn KE 26, Haförn AK 25, Dóri ÍS 252, Sólrún NS 26 og Sigurfari II RE 16.