17.03.2013 19:00

Bergþór KE 5

                   824. Bergþór KE 5, í Keflavíkurhöfn © mynd Emil Páll, fyrir einhverjum áratugum
                 

Smíðaður hjá Frederikssund Skipsverft í Fredrikssund, Danmörku 1930, Endurbyggður í Njarðvík 1971-1972.

Árið 1989, var báturinn elsti bátur Suðurnesja og 4. elsti bátur landsins. Árið 1993 var hann næst elstur báta landsins og frá áramótum eða árinu 2000 hefur hann verið elsti bátur landsins. Báturinn er þó ekki lengur notaður sem fiskiskip.

1963 til 1972 gekk báturinn undir nafninu ,,Torfbærinn".

Nöfn: Huginn GK 341, Jón Dan GK 341, Farsæll SH 30, Sæborg GK 86, Sæborg BA 86, Sæborg RE 328, Sæborg SH 128, Sæborg RE 325, Sæborg KE 102, Bergþór KE 5, Ingólfur GK 125, Fengsæll GK 262 og núverandi nafn: Fengsæll ÍS 83.