13.03.2013 13:26
Fimm þúsund tonn af loðnu í Helguvík sama daginn
Af vf.is:

Þrjú loðnuskip voru á sama tíma í Helguvík í gær með samtals 5 þús. tonn. Hákon SU, Vilhelm Þorsteinsson og Erika frá Færeyjum.
Fiskimjölsverksmiðja Síldarvinnslunnar í Neskaupsstað í Helguvík hafði fram að þeim tíma tekið við 17 þúsund tonnum af loðnu. Sáralitla eða nánast enga lykt leggur frá bræðslunni sem er orðinn mjög fullkomin. í gamla daga var talað um peningalykt þegar bræðsla stóð yfir.
Skrifað af Emil Páli
