19.01.2013 00:00

Frár VE 78 og Tryggvi Sigurðsson. Drulluskokkur nr. 1

                  1595. Frár VE 78, kominn upp í slipp hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur í ágúst 2009

                1595. Frár VE 78, tilbúinn til sjósetningar í Skipasmíðastöð Njarðvíkur í sept. 2009

Svo þeir sem þekkja ekki til, haldi ekki að ég sé að valta yfir skipaljósmyndarann Tryggva Sigurðsson, þá er hann í mótorhjólaklúbb sem heitir Drullusokkar og heiti hans þar er Drullusokkur nr. 1. Endurbirti ég nú syrpu sem ég tók af honum og Frá VE fyrir um þremur árum  í Njarðvík, er bátur sá sem Tryggvi er vélstjóri á Frár VE 78 var að koma úr slipp. En meðan á slippdvölinni stóð hafði Tryggvi með sér mótorhjólið sitt og tók það auðvitað um borð að nýju áður en haldið var heim á leið og eru myndirnar því helgaðar honum, auk bátsins.


                 1595. Frár VE 78, laus úr sleðanum og stefnir á bryggjuna til að taka hjól Tryggva


            Eftir sjósetningu á Frá kom Tryggvi á mótórfáki sínum að skipshlið


             Áður en gengið er frá hjólinu til hífingar um borð þarf að taka af sér hjálminn


                                 Það er ekki sama hvernig tógið er sett á hjólið


                 Ekki var þetta alveg nógu gott og því þurfti að laga áður en híft var


                                                        Þetta er allt annað


                                                     Hjólið komið á loft


                     Svo allt færi nú eins og Tryggvi vildi sjálfur tók hann við stjórn kranans


              Eftir að hjólið og Tryggvi voru komin um borð var siglt út frá Njarðvík



                                     © myndir Emil Páll í ágúst og september 2009