17.01.2013 08:00
Albert, björgunarskúta Norðurlands fannst í Seattle
Þetta alíslenska varðskip, já alíslenska segi ég því það var líka smíðað á Íslandi, er þó ótrúlegt sé ennþá til í Bandaríkjunum.

9. Albert, björgunarskúta Norðurlands, á Akureyri © mynd úr Fálkanum
Smíðað í Reykjavík 1956 sem björgunar- og varðskip. Selt síðan hingað innanlands 1978 og þaðan til Banarríkjanna 1980. Eftir það hefur verið mjög erfitt fyrir okkur grúskaranna að finna neitt um skipið þar til á síðasta ári að einn grúskaranna fann mynd af því sem þá var nýleg og virðist skipið því enn vera í Bandarríkjunum.
Þó nokkrir hér heima á klakanum virðast hafa áhuga fyrir skipinu, því stofnuð hefur verið síða fyrir þá sem hafa áhuga fyrir v/s Albert
En allt um þetta má lesa í þessari grein sem ég birti hér fyrir neðan og var á vef Landhelgisgæslunnar
Fyrrverandi björgunar- og varðskipið Albert fannst í Seattle

- Albert í Seattle
Miðvikudagur 9. janúar 2012
Björgunar- og varðskipið Albert sem smíðað var fyrir Landhelgisgæsluna og Slysavarnafélag Íslands árið 1956 "fannst" nýverið Lake Union í Seattle. Skipið var nýsmíði nr. 2 hjá Stálsmiðjunni og var í notkun hjá Landhelgisgæslunni til 1978 en þá var skipið selt. Eigendur skipsins sigldu skipinu til Bandaríkjanna og tóku það af skrá hérlendis undir lok ársins 1980. Má segja að þar með hafi skipið "týnst".
Guðmundur Birkir Agnarsson stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni hefur leitað eftir upplýsingum og fékk á því staðfestingu í gær og mynd af skipinu. Heitir skipið ennþá Albert og er með skráða heimahöfn í Seattle. Var dregið haustið 2011 til Seattle frá bænum Homer í Alaska, þar sem það hefur legið að mestu ónotað í 22 ár. Ekki hafa ennþá fengist upplýsingar um hvað stendur til að gera við skipið.

