12.01.2013 10:34

Tækjasyrpa frá Svafari Gestssyni úr safni Eidisvik

Svafar Gestsson: Nú erum við komnir með Bømmelbas til Fiskebäck í Svíþjóð en þar mun KVK vélsmiðja gera allar þær breytingar á skipinu sem þarf til að hægt verið að dæla úr flottrollinu á bb horninu að aftan. Skipið verður því útbúið bæði til nóta og togveiða. Áætlað er að verkið taki 3-4 vikur og eru væntanlegir hingað á mánudaginn 5 pólskir stálsmiðir sem munu vinna við þessar breytingar ásamt starfsmönnum KVK og setja upp spilbúnað fyrir vökva og fiskislöngur ásmt pokaspili.  Að því loknu er okkur ekkert að vanbúnaði að sigla til Dakhla í Morocco og hefja veiðar.

Hér í myndapakka eru m.a. myndir úr stórmerkilegu einkasafni sem Magni gamli Eidisvik hefur komið upp í ellini og safnað saman miklum fjölda Wichmann véla ásamt öðrum tegundum. Þær elstu frá því rétt eftir aldamótin 1900 allar þessar vélar eru í góðu ásigkomulagi og gangfærar og eru ræstar af og til. Einnig er mikið safn af tækjum úr brú ásamt öllu því sem tilheyrir fiskveiðum fyrri tíma. Magni þessi er seljandi Bømmelbas en fyrir eiga þeir Magni og synir Elisabeth og Bømmelfjörd og til stendur að kaupa annað skip í stað Bömmelbas.  Svo eru líka myndir frá Bömlo, Leirvík á eynni Stord, Egersund og Fiskibäck í Svíþjóð.

Kveðjur frá Fiskebäck.

Svafar Gestsson.

Hér kemur fyrri hlutinn af myndunum frá Svafari

                                                Wichmanvélar

            Wichmanvél Type J framleidd 1913 til 1951 234 stk

               Wichmanvél DC 5 cyl framleiddar 1962 - 1972  - 9 stk

                      Svafar Gestsson, tilbúinn að hita Gloðarhaus á gamla SABB


             SABB glóðarhaus  - 6 til 12 hp, framlleitt 1925 - 66, 14854 stk


                                               Motorlampar


                                            Krabbagildrur


                                            Gömul brúartæki

© myndir Svafar Gestsson, nema myndin þar sem hann sést, þá mynd tók Baldur Sig. í jan. 2013