11.01.2013 00:00

Hefur borið 13 nöfn - aðeins myndir af 8 þeirra

Hér er á ferðinni 47 ára gamalt skip, er  verður 48 ára á þessu ári, og enn er í góðri drift. Það hefur borið 13 nöfn, en ég hef aðeins myndir af átta þeirra og því vantar mér myndir af 5 nafnana.


                               972. Þorsteinn RE 303 © mynd Snorrason


                                 972. Hafrún ÍS 400 © mynd úr Flota Bíldudals



                        972. Pétur Ingi KE 32 © mynd í eigu Emils Páls


                          972. Stjörnutindur SU 159 © mynd Snorrason


                     972. Stjörnutindur SU 159 © mynd skipasaga.is


                            972. Vigdís BA 77 © mynd Snorrason


                     972. Garðey SF 22 © mynd Snorrason


                                    972. Kristín GK 157 © mynd Emil Páll


                                    972. Kristín ÞH 157 © mynd Emil Páll


                972. Kristín ÞH 157, að koma inn til Grindavíkur © mynd Emil Páll, 24. ágúst 2010


                  972. Kristín ÞH 157, að koma inn til Grindavíkur © mynd Emil Páll, 24. ágúst 2010



Smíðanúmer 408 hjá Veb. Elbewerft, Boizenburg, Þýskalandi 1965, eftir teikningu Hjálmars R. Bárðarsonar. Yfirbyggður í Noregi 1982. Lenging og umfangsmiklar breytingar gerðar hjá Nordship í Gdynia, Póllandi 1998. Veltitangur settur í hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur 2007.

Selja átti skipið til Skagstrendings hf., Skagaströnd í maí 1991, en Patrekshreppur neytti forkaupsréttar.
Upphaflega stóð til að Baldur hf. í Keflavík keypti bátinn, en þeir fengu ekki fyrirgreiðslu til þess.
Vísir hf. hafði skipið á leigu í fjögur, ár meðan það hét Garðey SF.

Nöfn: Þorsteinn RE 303, Hafrún ÍS 400, Hafrún BA 400, Pétur Ingi KE 32, Stjörnutindur SU 159, Lýtingur NS 250, Vigdís BA 77, Haraldur EA 62, Ásgeir Guðmundsson SF 112, Atlanúpur ÞH 270, Garðey SF 22, Kristín GK 157 og núverandi nafn: Kristín ÞH 157.

Þau nöfn sem ekki er mynd af eru:  Hafrún BA 400, Lýtingur NS 250, Haraldur EA 62, Ásgeir Guðmundsson SF 112 og Atlanúpur ÞH 270.