27.10.2012 11:01

Fengu 12 túnfiska í túrnum

mbl.is:

Skipverjar á Stafnesi voru ánægðir með veiðina. stækkaSkipverjar á Stafnesi voru ánægðir með veiðina.

Stafnes kom til Grindavíkur í gærkvöldi með 12 túnfiska sem skipið veiddi eftir fimm daga túr. Aflinn fer á markaði í Japan, en mjög hátt verð er greitt fyrir túnfisk í Japan.

Skipið var að veiðum um 200 mílur suður af Reykjanesi. Um 21 klukkutíma tók að sigla í land.

Stafnes er eini íslenski báturinn sem stundar túnfiskveiðar um þessar mundir. Hinsvegar stunda japönsk skip túnfiskveiðar á svipuðum slóðum. Í síðasta túr veiddi báturinn fjóra fiska, en þessi túr skilaði 12 fiskum. Fiskarnir eru c.a 2 metrar á lengt og um 205 kíló að þyngt.