16.10.2012 15:13

Hrappur, Strandamaður og Grindvíkingur

Núna eftir hádegi var loksins tekinn út úr húsi hjá Bláfelli á Ásbrú, hinn nýi bátur Hrappur GK 6 og er reiknað með að hann verði sjósettur í Grindavík á morgun. Ekki var vélaraflinu fyrir að fara við að draga bátinn út, heldur var það mannshöndin sem sá fyrir því verki. Hér koma myndir sem ég tók við það tækifæri svo og af strandamanninum Elíasi Ingimarssyni, eiganda Bláfells og Grindvíkingnum Jóhanni Guðfinnssyni, eiganda Hrapps.


                        Strandamaðurinn Elías Ingimarsson, dregur bátinn á tjakki








                                    Þá er 2834. Hrappur GK 6, kominn út undir bert loft


                Strandamaðurinn Elías Ingimarsson (t.v.) og Grindvíkingurinn Jóhann Guðfinnsson


                                                © myndir Emil Páll, 16. okt. 2012