Vel gekk að draga Maggý VE til
hafnar. Í fyrstu tók björgunarbáturinn Þór, Maggý í tog, en Lóðsinn
dró bátinn lokaspölinn til Eyja. Eldur kviknaði í bátnum um ellefu
leytið í morgun í vélarrúminu. Óskar Pétur Friðriksson fór út með
björgunarbátnum Þór í morgun og tók þessar myndir af heimferðinni og
heimkomunni. Og það urðu að fagnaðafundir á bryggjunni þegar
skipverjarnir sjö stigu á land, en þar voru fjölskyldur þeirra og
vinir mættir á bryggjuna.
19.07.2012 15:16
Maggý VE 108 komin til Eyja
Eyjafréttir.is
Ekki er vitað um eldsupptök.
Skrifað af Emil Páli





