11.07.2012 00:00
Sjávarútvegsráðherra Nýfundalands heimsótti, Vísi hf. Grindavík, Haustak og Ný-fisk
Sjávarútvegsráðherra Nýfundnalands, Darin King, heimsótti Vísi í síðustu viku en hann var hér staddur til að kynna sér íslenskan sjávarútveg. Ráðherrann heimsótti einnig Ný-Fisk í Sandgerði og Haustak á Reykjanesi og fundaði með Fiskistofu, Hafrannsóknarstofnuninni og Matís.
Heimsókn ráðherrans lauk svo á Bessastöðum þar sem Forseti Íslands tók á móti hópnum. Á vef forsetans er greint frá því að "rætt var um samstarf landanna á þessu sviði, uppbyggingu byggðarlaga sem byggjast á fiskveiðum og hvernig sjávarútvegur geti verið grundvöllur fyrir þróun hátæknigreina."
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá heimsókninni.
