23.06.2012 20:41
Vantar upplýsingar
Endurbirt auglýsing, af gefnu tilefni:
Ég, Þorgrímur Ómar Tavsen, og fyrir hönd Lofnar ehf auglýsi hér með
eftir eftirfarandi eigum mínum. Allar upplýsingar eru vel þegnar og
fundarlaunum heitið.
Tveimur kerrum var stolið frá Lofn ehf á
Hofsósi. Önnur er ca. 2,55 á breidd, 3.0 á lengd og er útbúin með
sturtum sem auðveldar að taka tvo snjósleða en hún er með snjósleðaskýli
að framan. Smíðuð úr járni, með járnhliðum og er öll galvaníseruð.
Hásinkin undir henni er úr Chervolet 1978, grænmáluð.
Sigurður Friðriksson Bakkaflöt smíðaði þessa kerru fyrir mig.
Hin kerran er smíðuð úr galvaníseruðu járni og brúnum krossvið, einnig
útbúin sem snjósleðakerra með sturtum og vindhlíf, hjólaöxullinn undir
henni er með Bronco nöfum, hún er opnanleg bæði að framan og aftan, er á
Whitespoke felgum og var smíðuð af Óskari Halldórssyni Sauðárkrók fyrir
mig.
Einnig var stolið úr veiðarfærageymslu Lofnar ehf
Hofsósi, 20 feta frystigám, sem ég er búinn að eiga í 19 ár, með
grásleppuúthaldi sem samanstanda af 600 grásleppunetum með 10mm norskum
flottein, 9mm norskum blýtein, og kleinuhringjum á 7mm norskri línu.
Netin eru tíu og hálf tomma 120 faðma slanga sem er felld niður í 31-32
faðma,færin eru 10 mm græn,gul með svörtu í,hvit með rauðu og blá með 4
litum og eru 50 til 80 faðmar, belgir, baujur úr 2 metra bambus og plast
með rauðu kork búnar til af Fjólmundi Fjólmundssyni. Drekar smíðaðir úr
10 og 12mm steypustyrktarjárni með keðjum. Einnig var tekið tölvert af
öðru veiðarfæratengdu en allt sem er merkt SK7 - 37 - 137 - 147 - 237
eða með nöfnunum Bergey eða Berghildi er þinglýst eign Lofnar ehf,
undaskilin eru nokkur kör og belgir þannig merkt sem eru eign Grafarós
ehf og Sveins Sveinssonar Hofsósi.
3 rótora
netaspili,rústfríum netaniðurleggjara mið stærð og netaborð var einnig
stolið en fannst í Hafnarfirði og er lögreglan þar með það mál. Ef
einhver hefur vitneskju um það mál, væri hún vel þegin.
Úr 40 feta geymslugám Lofnar ehf, voru tekin öll handverkfæri afa míns, Þorgríms Hermannssonar sem hann ánafnaði mér.
Úr Skvettu SK7 var tekið rústfrítt línuspil, 20 færi ásamt belgjum, 7
sjóveiðistangir,sem hafa verið notaðar sl. 10 ár við sjóstangaveiði
tengdar sumarbúðum fatlaðra að Löngumýri. Úr Nissan flutningabíl Lofnar,
hvarf vörubrettatrilla.
Af einu af heimilum mínum Hólavegi
27, hurfu næstum öll fötin mín, en þó að ég fari í burtu tímabundið, þá
gefur það ekki öðrum leyfi til þess að ráðast á eigur mínar.
Vek ég athygli á 264. gr. almennra hegningarlaga en þar er m.a. kveðið á
um eftirfarandi: Hver sem tekur við eða aflar sér eða öðrum ávinnings
af broti samkvæmt lögum þessum skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2
árum. Sömu refsingu skal sá sæta sem geymir eða flytur slíkan ávinning,
aðstoðar við afhendingu hans eða stuðlar á annan sambærilegan hátt að
því að tryggja öðrum ávinning af broti. Nú er brot ítrekað eða stórfellt
og getur refsing þá orðið fangelsi allt að 4 árum. Sé brot framið af
gáleysi varðar það sektum eða fangelsi allt að 6 mánuðum.
Ég
hef kært öll þessi mál til lögreglu sem hefur ekki orðið neitt ágengt í
rannsókn sinni. Bið ég því þá sem gætu hafa orðið varir við eitthvað af
ofangreindu dóti, um að tilkynna það beint til sýslumanns eða lögreglu á
Sauðárkróki, en ekki til fulltrúa þar því þeir eru vanhæfir vegna
tengsla. Eða beint til mín.
Fundarlaun í boði. Ef næst sakfelling á þjófinum eða þýfiskaupanda býð ég allt að 40% af andvirði hvers hlutar í fundarlaun.
Þorgrímur Ómar Tavsen
s: 8430500 ·
- Þorgrímur Ómar Tavsen Þar sem eitthvað af dóti mínu sem stolið var er farið að líta dagsins ljós þá endurbirti ég auglýsinguna og minni á að sá sem kaupir þýfi er jafn brotlegur og sá sem stal samkvæmt 264 grein almennrar hegningalaga.
Skrifað af Emil Páli
