27.05.2012 19:24
Styttist í Sjóarann síkáta

Sjóarinn síkáti í Grindavík hefur fest sig í sessi sem öflugasta sjómannadagshátíð landsins. Á sama tíma og hefðbundin hátíðarhöld sjómannadagsins hafa víða verið lögð niður undanfarin ár hafa Grindvíkingar tekið þá stefnu af efla Sjóarann síkáta enn frekar enda Grindavík einn öflugasti sjávarútvegsbær landsins. Mikið er lagt upp úr því að Sjóarinn síkáti er fyrst og fremst fjölskylduhátíð þar sem fjölbreytnin er í fyrirrúmi.
Tónlistin skipar jafnframt stóran sess á hátíðinni. Margir af
fremstu listamönnum þjóðarinnar koma fram á Sjóaranum síkáta að þessu
sinni. Auk Ragga Bjarna og Valdimar má nefna Hjálma, Pál Óskar, Helga
Björns, Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar, Andreu Gylfadóttur, Ingó
Veðurguð, Hreim, Skítamóral o.fl.
Reynt er að bæta umgjörð
hátíðarinnar á hverju ári í samvinnu við þá fjölmörgu aðila sem koma að
undirbúningi hennar á hverju ári. Að þessu sinni verður stórt og mikið
svið á hátíðarsvæðinu við Kvikuna alla helgina í stað vörubílspalls til
að bæta aðstöðuna fyrir listafólkið og atriðin komast mun betur til
skila fyrir áhorfendur. Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur kemur
myndarlega að hátíðinni, sérstaklega á Sjómannadeginum sjálfum þar sem
Guðni Ágústsson verður ræðumaður dagsins og heiðursviðurkenningar og
kappróður verður á sínum stað.
Fjórða árið í röð er svo bænum skipt upp í fjögur litahverfi og síðan
verður litaskrúðganga á föstudagskvöldinu úr hverfunum fjórum að
hátíðarsvæðinu við Kvikuna. Grindvíkingar hafa skreytt bæinn sinn hátt
og lágt og tekið virkan þátt í hátíðarhöldunum. Við bjóðum jafnframt
alla landsmenn velkomna á Sjóarann síkáta.
Fyrir yngri kynslóðina
verða ýmis skemmtileg dagskráratriði eins og dorgveiðikeppni sem nýtur
mikilla vinsælda, Brúðubíllinn sívinsæli, dans frá Danssmiðjunni í
Reykjanesbæ og einnig hópur frá Grindavík, Skoppa og Skrítla,
skemmtisigling fyrir alla fjölskylduna, sjópulsan vinsæla verður í
höfninni, hægt að fá reiðtúr með mótorhjóli, fara á hestbak, Gókart,
sprellleiktæki, hoppikastalar og trúðar verða á svæðinu og margt fleira.
Margt
fleira er á boðstólum í Grindavík alla Sjómannadagshelgina og dagskrána
er hægt að nálgast í heild sinni á www.sjoarinnsikati.is
