09.05.2012 12:36
Strandaði nærri Hrollaugseyjum
ruv.is:

Krókaveiðibáturinn á strandstað, rétt ókominn á flot. Mynd: Sigurður Guðmundsson.
Krókaveiðibátur strandaði á sandrifi um klukkan hálf átta í morgun NNA af Hrollaugseyjum suðaustur af landinu. Einn maður var um borð.
Landhelgisgæslan fékk tilkynningu um strandið og var samstundis haft samband við Ingibjörgu, björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Höfn í Hornafirði, sem fór til aðstoðar og var báturinn laus af strandstað um kl. 10:00. Björgunarskipið fylgir bátnum til Hafnar.
Skrifað af Emil Páli
