27.04.2012 21:00
Fjórir nýir sjósettir á tveimur dögum - meira á miðnætti
Fjórir bátar sem sjósettir voru í gær og í dag, eiga það sameiginlegt að vera framleiddir hjá Bláfelli ehf. á Ásbrú, en tækja- og vélabúnaður var settur niður í þá alla í Hafnarfirði. Í gær var einn sem ég kynnti í haust sem þann fyrsta sem er með hærra húsi en aðrir Sómabátar, var sjósettur í Hafnarfirði og fer hann til Snæfellsnes, en hinir þrír sem sjósettir voru í dag í Snarfarahöfn í Reykjavík fara allir til Ísafjarðar. - Nánar verður fjallað um bátanna og fylgst með ferðum þeirra til sjávar á miðnætti.

7716. Björn Kristjónsson SH 164, var sjósettur í Hafnarfirði í gær, 26. apríl 2012

2823. Otur ÍS 73, rennur í sjó í Snarfarahöfn í Reykjavík í dag

2824. Dengsi ÍS 17, sjósettur í Snarfarahöfninni í Reykjavík í dag

2825. Hrafntinna ÍS 150, komin að bryggju í Snarfarahöfninni í dag
- Meira á miðnætti -

Skrifað af Emil Páli