12.03.2012 10:26

Loðnuflotinn staddur við Garðskaga

visir.is

Loðnuflotinn staddur við Garðskaga
Loðnuflotinn er farinn úr Breiðafirði og er nú um það bil tíu sjómílur norðvestur af Garðskaga, eftir að þar fréttist af nýrri loðnugöngu á föstudagskvöldið.

Nokkur skip fengu þar afla á laugardag, en svo fór veðrið versnandi og var ekkert hægt að veiða í gær. Nú fer veður batnandi á ný.

Fréttastofunni er ekki kunnugt um hversu mikil loðna er þarna á svæðinu, en þetta gæti þýtt að öll skipin næðu að veiða kvóta sína á vertíðinni.