06.03.2012 13:00
175 milljón króna aflaverðmæti í einum túr
Óhætt er að segja að frystitogarar Þorbjarnar hf. geri það gott þessa dagana. Kom Hrafn Sveinbjarnarson úr mettúr á dögunum og í gær kom Hrafn GK 111 úr 30 daga veiðitúr og landaði 440 tonnum. Verðmæti aflans var hvorki meira né minna en 175 milljónir króna.
Frá þessu var greint á vefnum grindavik.is
Skrifað af Emil Páli
