24.02.2012 00:00
Hafborg MB 76 / Heiðrún ÍS 4 / Sólfell GK 62 og myndir af henni sokkinni í Njarðvíkurhöfn
Halda mætti að hér væri á ferðinni Svíþjóðarbátur frá því á lýðveldisárinu, en svo er ekki heldur er um innlenda smíði að ræða. Báturinn endaði ferilinn sinn með því að sökkva í Njarðvikurhöfn og eftir að hafa verið náð upp, liðu nokkrir mánuðir og síðan var báturinn brenndur.
87. Hafborg MB 76, sjósett 1944 © mynd Eyfirsk smíði, SB

87. Hafborg MB 76 © mynd Eyfirsk smíði, Árni Björn Árnason, Íslensk skip

87. Heiðrún ÍS 4 © mynd Snorri Snorrason

87. Sólfell GK 62, í Njarðvikurhöfn, þar sem hann sökk við
bryggju 21. janúar 1973 © myndir Emil Páll, janúar 1973
Smíðaður í Skipasmíðastöð KEA, á Akureyri 1944. Sökk í Njarðvíkurhöfn 21. janúar 1973. Náð upp en talin ónýt og brennd undir Vogastapa 10. desember 1973.
Heiðrún ÍS var gerð út frá Suðurnesjum 1956 og 1957 undir skipstjórn Haraldar Ágústssonar og lagði þá upp í Höfnum og var Haraldur aflakóngur Suðurnesja þessi ár. Árið 1960 var báturinn gerður út frá Vogum og þá var skipstjóri Benedikt Árnason og var báturinn það árið aflahæstur í Vogum.
Sólfell GK 62 var með heimahöfn í Höfnum á Reykjanesi.
Nöfn: Hafborg MB 78, Heiðrún ÍS 4, Vestri BA 63 og Sólfell GK 62.

Skrifað af Emil Páli