Varðskipið Þór er farið frá landinu að sinni vegna bilunar. Ómar Óskarsson Varðskipið Þór er nú á leið til Noregs til viðgerðar eins og áætlað var, en brottför tafðist um nokkrar klukkustundir í gær vegna smávægilegrar bilunar. Lagt var upp um hádegisbil í gær en skipinu var fljótlega snúið aftur til Reykjavíkurhafnar.Að sögn Hrafnhildar Brynju Stefánsdóttur, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, kom upp smávægilegt vandamál sem þurfti að laga áður en unnt væri að sigla til Noregs. Þór hafði þá verið bundinn við bryggju í á annan mánuð meðan prófanir voru gerðar á honum vegna bilunar, en óeðlilegur titringur hefur verið í annarri af tveimur aðalvélum skipsins. Nokkrar klukkustundir tók að komast fyrir bilunina og hélt Þór aftur úr höfn í gærkvöldi. Siglt verður á einni vél og er áætluð koma til Bergen í Noregi á miðvikudag. Búast má við því að viðgerðin taki minnst 4-5 vikur en það gæti þó orðið lengri tími. Áhöfn Þórs flýgur aftur heim til Íslands á föstudag.Á meðan viðgerðir fara fram á Þór mun varðskipið Ægir sjá um gæslustörf í nánd við landið."/>

06.02.2012 13:00

Enn skrökvar Gæslan um Þór

Allt frá því að varðskipið Þór hefur ótrúleg skáldskaparflétta verið í kring um skipið. Það þurfti að leita inn til Helguvíkur vegna bilunar og gestir sem komu um borð voru beðnir um að segja ekki frá henni. Síðan komu fréttir um að allt aðrar ástæður hefður verið fyrir ferðinni til Helguvíkur, en bilun í vélinni.
Skipið fór til Reykjavíkur þar sem viðgerðarmenn voru að störfum, síðan var farið út og eins var farið í slipp á Akureyri. Þó var ekki viðurkennt hvað væri að og í raun kom það ekki fram fyrr en nú að skipið var að fara til Noregs. Í gær fór það loksins á leið til Noregs en þurfti að snúa við eins og fram kemur í frétt mbl.is. í dag og ég birti hér fyrir neðan. Fréttirnar í gær voru þó ekki um að skipinu hafi verið snúið við, nei það hafði verið í prufusiglingu.
Hvers vegna geta ráðamenn gæslunnar ekki sagt sannleikann? Varla þurfa þeir að skammast sín fyrir bilanir? Er kannski eitthvað að sem þeir vilja ekki að aðrir fái að frétta af?

Hér kemur fréttin á mbl.is í morgun:

Þór verður minnst 4 vikur í Noregi

Varðskipið Þór er farið frá landinu að sinni vegna bilunar. stækka

Varðskipið Þór er farið frá landinu að sinni vegna bilunar. Ómar Óskarsson

Varðskipið Þór er nú á leið til Noregs til viðgerðar eins og áætlað var, en brottför tafðist um nokkrar klukkustundir í gær vegna smávægilegrar bilunar. Lagt var upp um hádegisbil í gær en skipinu var fljótlega snúið aftur til Reykjavíkurhafnar.

Að sögn Hrafnhildar Brynju Stefánsdóttur, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, kom upp smávægilegt vandamál sem þurfti að laga áður en unnt væri að sigla til Noregs. Þór hafði þá verið bundinn við bryggju í á annan mánuð meðan prófanir voru gerðar á honum vegna bilunar, en óeðlilegur titringur hefur verið í annarri af tveimur aðalvélum skipsins.

Nokkrar klukkustundir tók að komast fyrir bilunina og hélt Þór aftur úr höfn í gærkvöldi. Siglt verður á einni vél og er áætluð koma til Bergen í Noregi á miðvikudag. Búast má við því að viðgerðin taki minnst 4-5 vikur en það gæti þó orðið lengri tími. Áhöfn Þórs flýgur aftur heim til Íslands á föstudag.

Á meðan viðgerðir fara fram á Þór mun varðskipið Ægir sjá um gæslustörf í nánd við landið.