17.11.2011 15:14

Már SH, Kambaröst SU og óþekktur ? í Namibíu

Fyrir nokkrum dögum birti ég tvær myndir sem teknar voru sama dag og þær birtust hjá mér í Walvis Bay, í Namibíu og spurt var hvort menn þekktu skipin. Þó nokkuð mörg svör bárust varðandi togaranna og voru þau öll sammála um að þetta væru togararnir sem hér hétu 1552. Már SH 127 og 1497. Kambaröst SU 200, en enginn kom með ágiskun varðandi bátinn. Endurbirti ég nú myndirnar, með því sem talið er passa, eða ekki passa.

Hér er því um ágiskanir að ræða, sem ég sel ekki dýrari en ég keypti.


                   ? Ex 1552. Már SH 127 og ? ex 1497. Kambaröst SU 200 ?


                                                              ? ex ????

                  © myndir Hjörleifur Einarsson, í Walvis Bay, Namibíu, 13. nóv. 2011