16.11.2011 23:37
Borgin fær nafnið ÍSbjörn ÍS
Nýr skuttogari bætist í skipaflota Ísfirðinga innan tíðar, er það Borgin sem ég sagði frá hér á síðunni fyrir nokkrum dögum að ég hefði heyrt að verið væri að ganga frá kaupum á. Í bb.is. er þetta sagt um málið í dag.
"Ég var að skrifa undir kaup á 1000 tonna skuttogara. Næsta mál er að setja skipið í slipp fyrir sunnan og gera það sjófært og vonir standa til að það komist á veiðar um miðjan janúar," segir Jón Guðbjartsson stjórnarformaður rækjuvinnslunnar Kampa og eigandi útgerðarfélagsins Birnis sem standa sameiginlega að kaupum skipsins. "Þetta er skip sem við vonumst til að fiski eitt til tvö þúsund tonn af rækju á ári hér og þar. Það verður skráð á Íslandi og verður gert út frá Ísafirði. Það kemur til með að heita Ísbjörn," segir Jón.
Aðspurður um hversu mikil áhrif þetta muni hafa fyrir rækjuvinnsluna segir hann: "Þetta mun laga öflunarstöðu Kampa um 20-25% þannig að við þurfum að kaupa minna hráefni." Þá muni koma skipsins einnig skapa störf. "Yfirleitt á svona skipi sem er úti þrjár vikur í senn eru tvær áhafnir þannig að við sjáum fram á þarna verði 22-24 störf í framtíðinni."

Togarinn Borgin, sem nú fær nafnið Ísbjörn ÍS

Skrifað af Emil Páli